Sleppa yfir í meginmál

Pallar og menn ehf.

Alhliða palla- og byggingafyrirtæki

Pallaleiga, uppsetning, niðurtekt og akstur til og frá verkstað — ásamt alhliða byggingarvinnu. Frá 2006.

Öryggi í vinnu í hæð

Vel uppsettur vinnupallur er almenn og góð fallvörn. Aðeins þjálfað fólk setur upp röraverkpalla, tekur þá niður eða breytir þeim.

  • Þjálfað starfsfólk

    Starfsmenn okkar eru þjálfaðir í þeim öryggisstöðlum sem gilda um uppsetningu vinnupalla og vinna eftir þeim við hverja uppsetningu, breytingu og niðurtekt.

  • Fallvörn og öryggislínur

    Vinnupallurinn sjálfur er grunnfallvörnin. Öryggislínur eru notaðar þar sem við á, en þær þarf að nota rétt — rangt notaðar geta þær verið varasamar.

  • Ekkert má falla niður

    Við leggjum áherslu á að koma í veg fyrir að verkfæri eða búnaður falli niður á gangandi vegfarendur og starfsmenn sem eru fyrir neðan pallinn.

Um okkur

Fjölskyldufyrirtæki sem hefur þjónustað byggingarverktaka frá 2006.

Pallar og menn er alhliða palla- og byggingafyrirtæki sem annast pallaleigu, uppsetningu, niðurtöku, akstur til og frá verkstað ásamt alhliða byggingarvinnu.

Fyrirtækið var stofnað árið 2006 af þeim Hjálmari Höskuldi Hjálmarssyni og Sigmari Andra Hjálmarssyni. Hjálmar er framkvæmdastjóri félagsins og Sigmar stjórnandi.

Fá tilboð í verkið

Hringdu eða sendu okkur línu — við förum yfir verkið með þér.

HringjaSenda póst